Borði

Klettaklifur á háskólastigi

Í haust var í fyrsta sinn á Íslandi boðið upp á námskeið í klettaklifri á háskólastigi (að því er undirritaður best veit). Mikill áhugi var meðal íþróttafræðinema fyrir klifrinu og var fullt í námskeiðið.


mynd: klifrað í Stardal

Farið var í helstu atriði línuvinnu, uppsetningu megintryggingar, sig og júmm, klifur í ofanvað og leiðslu í boltum.

Staðir sem voru heimsóttir voru Þingvellir, Stardalur, Valshamar og Tintron (hellir við Gjábakkaveg).

Um helmingur þátttakenda leiddi sína fyrstu leið og ekki ólíklegt að einhverjir haldi áfram klifri á eigin vegum.