
Skrifað af: Smári Stefánsson Fimmtudagur, 18. október 2007 13:36

Þegar niður í grunnbúðir kom hitta Viðar spúsu sína, hana Huldu, sem varð veik þar. Hafði sennilega hækkað sig of hratt. Þau héldu því niður til til Namche Baazar og stefna á Kathmandu.
Þeir sem eftir eru í leiðangrinum eru því Ingvar S. Yates og Tony Millichopy. Áætlaður toppadagur er á Laugardaginn, þá er bara að krossa fingurna og vona að allt gangi vel