Borði

Ásgeri Jónsson á Carstensz Pyramid

Ásgeir Jónsson lagði í síðustu viku þriðja tindinn í 7tinda verkefni sínu, Carstensz Pyramid (Puncak Jaya - 4.884 m) á Nýju Gíneu í Eyjaálfu.


mynd: CarstenzPapua.com

Ásgeir Jónsson er ólíkindatól í íslenskri fjallamennsku. Það er reyndar hæpið að kenna hann mikið við íslenska fjallamennsku enda fór hann nánast beint af jafnsléttu á Íslandi til móts við hæstu tinda erlendis. Undanfarin ár hefur hann tekið þátt í nokkrum stórum þríþrautarmótum, hlaupið nokkur maraþon og ætlar sér upp á hæstu tinda allra heimsálfa. Gríðarlega metnaðarfullt verkefni svo ekki sé meira sagt, hvað þá af manni sem sáralitla reynslu hefur í hefðbundinni fjallamennsku. Hann hefur nú þegar drepið niður fæti á Kilimanjaro og Elbrus. Í síðustu viku bætti hann svo Carstensz Pyramid í safnið, fyrstu Íslendinga.

Carstensz Pyramid heitir á frummálinu Puncak Jaya og telst réttilega vera hæsti tindur Eyjaálfu upp á 4884 metra. Fjallið hefur reynst mörgum 7tindafaranum óþægur ljár í þúfu, bæði er það tæknilega krefjandi fjall auk þess sem aðgengi að fjallinu er gríðarlega erfitt. Það var ekki ómerkari maður en sjálfur Heinrich Harrer sem fyrstur kleif tindinn árið 1962.

Ísalp óskar Ásgeiri að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn.