Borði

Íslandsmót í grjótglímu

Sunnudaginn 30 sept. næstkomandi blæs Klifurhúsið til leiks í mótaröð sinni þar sem keppt er um íslandsmeistaratitil í grjótglímu


mynd: klifurhúsið

Auk fyrsta mótsins eru þrjú í viðbót, 11. nóv og tvö eftir áramót. Keppt er í þremur kynjaskiptum aldursflokkum, 12 ára og yngri, 13-15 ára og 16 ára og eldri.

Keppendur hafa tvo tíma til að leysa sem flestar af þeim 20 leiðum sem settar eru upp. Bestu þrjú mót hvers keppanda gilda svo þegar lokastigin eru talin saman í vor og íslandsmeistarar krýndir.

Mótið á sunnudaginn hefst kl 14:00 (yngsti flokkurinn) og 15:00 (eldri).

Stjórn ÍSALP hvetur félagsmenn til að leita að ungmennafélagsandanum hjá sér því aðal atriðið er jú að vera með og hitta fólk og hafa gaman.