Borði

Ársritið

Eftir þrotlausa vinnu við að setja á fimmta hundrað ársrit í umslög og jafn mörgum flettingum í þjóðskránni til að uppfæra póstföng félaganna, eru ársritin loks komin í póst. Þeir sem ekki komust á kynningarkvöldið fá það því von bráðar inn um lúguna.


mynd: Ísalp

Þetta eru merkilegir tímar þar sem margir hafa beðið ansi lengi eftir þessu ársriti. Á sama tíma hefur stjórnin ákveðið að fara í naflaskoðun með hlutverk og áherslur klúbbsins í huga.

Það er ljóst að enginn klúbbur getur starfað án félagsmanna og klúbburinn er í raun félagsmennirnir. Áherslur og hlutverk klúbbsins eiga þess vegna að endurspegla vilja félaganna. Það er þess vegna sem stjórn ÍSALP hefur útbúið smá könnun til að skoðanir ykkar á klúbbnum nái fram að ganga og að við getum starfað í anda þess.

Stjórnin vill því hvetja alla sem áhuga hafa að starfa með klúbbnum að taka þátt í könnuninni á isalp.is/konnun (einnig linkur á forsíðunni).