
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Þriðjudagur, 11. september 2007 10:38

Miðvikudagskveldið 19. September opnar Íslenski alpaklúbburinn dyrnar fyrir nýjum og gömlum félögum. Starfsemi klúbbsins og dagskrá vetrarins verða kynnt. Góðir gestir sýna myndir og kynna mismunandi greinar fjallamennsku og klifurs. Þeirra á meðal eru hátindahöfðinginn Þorvaldur Þórsson (Olli), Páll Sveinsson ísklifrari með meiru og Hjalti Rafn Guðmundsson yfirþrautasetjari og rekstrarstjóri Klifurhússins. Einnig ætla Hlynur Stefánsson og Brynja Magnúsdóttir að sýna okkur myndir frá skíða-toppatúrum sínum.
Ekki er allt upptalið heldur fá félagar langþráð ársrit í hendurnar en það hefur ekki komið út allt of lengi. Einnig ætlar klifurhúsið að gefa frímiða í klifur. Betra tækifæri gefst ekki til að gera upp sumarið ásamt því að huga að afrekum vetrarins yfir kaffi og með því.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og allir velkomnir!
Mæting kl. 20 í klúbbaðstöðu á efri hæð Klifurhússins, Skútuvogi 1G (gengið inn frá Barkarvogi).