
Skrifað af: Smári Stefánsson Föstudagur, 24. ágúst 2007 13:30

Beygt er til vinstri við ruslagámana áður en farið er í gegnum hliðið, og ekinn slóði útfyrir nyrsta bústaðinn. Þar er bílnum lagt og gengið meðfram girðingunni og að hamrinum.
Ákveðið hefur verið að láta útbúa skilti sem verður sett upp á staðnum til að leiðin fari nú ekkert á milli mála.
Eitthvað er af stóru gróti á slóðanum sem þarf að fjarlægja til að allra minnstu bílarnir komist hann. Ég efast ekki um að ef félagsmenn leggja hönd á plóg er það lítið mál.
Nýja gönguleiðin er u.þ.b. tvöfallt lengri en sú gamla en við látum það nú ekki aftra okkur. Sú gamla var nú eiginlega of stutt, maður náði ekkert að hitna fyrir klifrið ;)
Stjórnin vonast til að menn virði samkomulag klúbbsins við sumarbústaeigendur og fari nýju leiðina til að forðast leiðindi, því hver veit hvernig það endar...
Allir í Valshamar!!