Borði

Og enn bætast við íslenskir háfjallaleiðangrar...

Móðir og hálsfesti hennar, sem er íslensk þýðing á Ama Dablam, er í Himalaya fjöllunum nánar tiltekið á Khumbu svæðinu ekki langt frá Everest. Fjallið, sem er eitt það tilkomumesta á svæðinu, er umvafið glæsilegum tindum og er útsýni af því á t.d. Everest, Lhotse, Pumori og Cho Oyu.

“Strákarnir” Halda utan 25. september og verða úti í rúman mánuð. Ingvar sem er kvikmyndatöku og –gerðar maður mun taka upp herlegheitin og vinna heimildarmynd um leiðangurinn. Þetta er mjög áhugavert í ljósi þess að aldrei áður hefur verið gerð mynd um leiðangur á Ama Dablam.

Þegar Viðar var spurður í gríni hvort hann væri ekkert stressaður yfir að vera að fara í leiðangur með “manninum með hnífinn” sagðist hann myndi leita á kallinum áður en lagt yrði í hann. En Simon var víst mjög áhugasamur um leiðangurinn þegar Ísalpararnir komu að máli við hann og vildi ólmur fara með.

Það er ljóst að svona leiðangur kostar töluvert og Hefur Fjallakofinn og Marmot stutt vel við bakið á þeim félögum. Hvað kvikmyndina varðar hefur Rúv tryggt sér forkaupsrétt á henni og sótt hefur verið um styrk í kvikmyndasjóð, hún er þó enn sem komið er fjármögnuð úr eigin vasa.

Með leiðangrinum vilja þeir félagar vekja athygli á starfsemi Unicef. Þeir munu dvelja í Nepal eftir leiðangurinn til að kynna sér starfsemi samtakana þar.

Það er aldrei að vita nema það takist að plata þá félaga til að standa fyrir myndasýningu eftir leiðangurinn og ekki verður leiðinlegt ef maður fær að sjá myndina í ríkissjónavarpinu.

ÍSALP fagnar þessum aukna krafti sem virðist vera að koma yfir íslenska fjallamenn og vonar að enn fleiri tindar verði klifnir á komandi árum.

Áfram Viðar og Ingvar!!!