Borði

Leifur Örn á leiðinni á Cho Oyu (8201)

Cho Oyu, sem er staðsett aðeins um 20 km. vestur af Everest, var fyrst klifið 1954. Þar voru á ferð tveir Austurríkismenn, Joseph Jöchler og Herbert Tichy ásamt sherpanum Pasang Dawa Lama...


mynd: Cho Oyu (8201)

Þegar maður skoðar sögu fjallsins kemur í ljós að ekki ómarkari klifrarar en Edmund Hillary og Reinhold Messner koma þar við sögu. Hillary tók þátt í leiðangri á fjallið, sem stýrt var af Eric Shipton, 1952 sem mistókst. Messner kleif fjallið hins vegar 1983 í 4. tilraun.

Það er oft talað um Cho Oyu sem auðveldasta 8000 m tindinn en hann er að sjálfsögðu ekki auðveldur, misheppnaðar tilraunir Hillary og Messner bera vitni um þaðþ

Rétt vestan fjallsins liggur verslunarleið Tíbeta og Sherpa um hið 5700 m. háa fjallaskarð Nangpa La. Glöggir ísalparar muna kanski að það var einmitt þar sem kínverskir hermenn drápu unga tíbetska nunnu fyrir um ári síðan. Myndir náðust af atvikinu sem gerði það að verkum að það spurðist út.

Leifur fer utan 29. ágúst og áætlar að vera úti í sex vikur. Leiðin liggur með flugi til Kahtmandu og þaðan til Lhasa í Tíbet. Þaðan verður ekið eins langt og hægt er eða í um 4800 m. hæð. Þaðan hefst svo leiðangurinn.

Ísalp óskar Leifi góðs gengis og klappar honum á kollinn fyrir frábært framtak fyrir íslenska fjallamennsku sögu