
Skrifað af: Smári Stefánsson Sunnudagur, 19. ágúst 2007 21:49

... Félagsskírteinin eru á leiðinni til félagsmanna í pósti. Við framvísun skírteinisins fá félagsmenn afslátt í ýmsum verslunum sem tengjast starfssemi klúbbsins. Þær verslanir sem áður hafa veitt ísalp félögum afslátt munu halda því áfram ásamt fleirum sem bætast í hópinn.
Ársritið umtalaða er nú komið í umbrot og geta félagsmenn sem greitt hafa árgjald síðustu ár án þess að fá nokkurt ársrit beðið spenntir eftir að það komi inn um lúguna. Það hefur s.s. verið ákveðið að þeir sem hafi greitt árgjald eitthvert seinustu ára án þess að hafa fengið ársrit munu fá þetta langþráða ársrit sent hvort sem þeir hafi greitt í ár eður ei, enda er þetta ekki ársrit ársins í ár heldur síðustu ára.