Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Miðvikudagur, 04. júlí 2007 12:33

Búið er að úthluta úr nýstofnuðum Ferðasjóði Cintamani og Ísalp. Hlutverk sjóðsins er að veita metnaðarfullum og krefjandi klifur- og fjallamensku leiðangrum fjárhagslegan stuðning. Ljóst er að sjóður af þessu tagi er gríðarleg innspýting fyrir íslenska fjallamennsku og standa vonir til þess að margar áhugaverðar umsóknir berist til sjóðsins á næstu árum. Cintamani hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við bakið á íslenska fjallamennsku og hafa nú stigið enn eitt skrefið í að auðvelda fjallamönnum og klifrurum að takast á við metnaðrfull verkefni.
Fyrir þessa fyrstu úthlutun bárust þrjár metnaðarfullar umsóknir, bæði frá innlendum og erlendur umsækjendum. Úthlutunarnefndin fór gaumgæfilega yfir allar umsóknir og eftir að hafa skeggrætt kosti allra umsókna var ákveðið að veita þeim Frey Inga Björnssyni, Guðmundi Tómassyni og Jóni Heiðari Andréssyni styrk til leiðangurs á fjallið Fitz Roy í Patagóníu. Þeir félagar ætla að reyna sig við Super Couloir leiðina. Fitz Roy er 3441. metra hár klettatindur og Super Couloir leiðin sjálf er 2000 metra löng blanda af erfiðu ís- og mix klifri. Auk þess sem klifrið er verulega krefjandi er Patagónía þekkt fyrir margt annað en veðurblíðu, þannig að ljóst er að þeir félagar eru að taka sér gríðarlega erfitt og metnaðarfullt verkefni fyrir hendur. Það verður því spennandi að fylgjast með undirbúningi og framkvæmd ferðarinnar.
Ísalp óskar þeim Frey, Gumma og Jóni Heiðari innilega til hamingju með styrkinn og óskum þeim gæfu og góðs gengis við verkefnið.
Úthlutunarnefd Ferðasjóðs Cintamani og Ísalp skipa þeir Jökull Bergmann, Haraldur Örn Ólafsson og Skarphéðinn Halldórsson.