Borði

Stardalsdagurinn

Laugardaginn 16. júní var haldinn svokallaður Stardalsdagur. Ætlunin var að smala reyndum sem óreyndum klifrurum í dalinn og klifra saman. Þeir sem minni reynslu hefðu fengju góð ráð frá þeim reyndari og sett væru upp top rope fyrir þá allra ferskustu.


mynd: Hallbera Gunnarsdóttir

Hvort það var nokkur vindur eða spenna fyrir þjóðhátíðardaginn sem gerði það að verkum að mæting var nokkuð dræm, skal ósagt látið.

Þeir sex sem létu sjá sig skemmtu sér konunglega við klifrið þó menn (og konur) hafi staldrað mis lengi við, var það helst þó nokkur vindkæling og þröngar túttur sem urðu þess valdandi að sumir hættu fyrr en aðrir.

Undirritaður lýsir yfir undrun sinni á því hversu lítið svæðið er notað í ljósi þess hve bergið í Stardalnum er skemmtilegt. Ég vil hvetja fólk til að nota þetta svæði í ríkara mæli, um að gera fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu að skjótast og taka tvær leiðir eftir vinnu.