
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Þriðjudagur, 29. maí 2007 14:55

Klettaklifurfestival Ísalp fór fram á Hnappavöllum um helgina. Á bilinu 20-30 manns létu sjá sig í klettunum en talsvert fleiri nýttu sér tjaldsvæðið. Óhætt er að segja skipst hafi á skin og skúrir alla helgina eins og oft vill verða á þessum slóðum. Þó komu góðir þurrir kaflar svo að allir sem vildu gátu klifrað. Sem betur fer var stóra kúlutjaldið frá Útilíf á staðnum þannig að enginn þurfti að hýrast úti í rigningunni. Kvöldvaka með gítarglamri og söng var og haldin í tjaldinu góða laugardagskvöld og telja menn að skemmtanahöld hafi farið fram með mestu spekt. Kunnum við Útilífi að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir lánið.
Keppt var í tveimur greinum, kílómetrakeppni og hraðakeppni í Páskaliljunum. Af þeim sem skiluðu inn skráningarblöðum í kílómetrakeppninni fór Björgvin Hilmarsson með sigur af hólmi, 7 leiðir klifraðar eða 88 metra. Hlaut hann að launum Metolius æfingakúlu frá Klifurhúsinu. Í hraðakeppninni flaug Róbert Halldórsson hraðast allra upp leiðina á 28 sekúndum, geri aðrir betur! Hann hlaut að launum klifurkalk, einnig frá Klifurhúsinu.
Stjórn Ísalp vonar að félagsmenn verði duglegir að mæta á Vellina í sumar, gangi snyrtilega um og borgi Kamargjaldið. Sjáumst að ári.