Borði

Kúkurinn Kallar

Þeir sem mættu á Hnappavelli um helgina eða hafa hugsað sér að gera það eru eindregið hvattir til að láta 500 kall af hendi rakna til að viðhalda þeirri góðu aðstöðu sem Klifurfélag Reykjavíkur hefur komið upp.


mynd: Ísalp

Þeir sem lagt hafa leið sína á Hnappavelli undanfarin ár hafa eflaust tekið eftir því að aðstaðan þar er til sóma. Reistur hefur verið snyrtilegur kamar og tvö stór borð með bekkjum eru við tjaldstæðið. Ekki slæmt fyrir "ókeypis" tjaldstæði.
En ekkert í heiminum er ókeypis, það þarf að halda kamri og borðum við og kaupa skeinipappír og þess háttar.
Um helgina var reynt að innheimta kamargjald á tjaldstæðinu. Eins og gengur og gerist í okkar rafræna samfélagi var varla nokkur maður með pening á sér.

Því gefst mönnum nú kostur á því að greiða kamargjaldið með rafrænum hætti

Það er þá 500 krónur á mann einu sinni að sumri.
Peningarnir núna verða notaðir til þess að borga nýja borðið og kaupa
viðarvörn á Kamarinn og borðin.

Leggist inn á:
Klifurfélag Reykjavíkur,
kt. 4103023810,
re. 0111-05-274410,
skýring greiðslu: KAMAR


Koma svo fólk, einn skitinn 500kall!