Borði

Klifurfestival á Hvítasunnuhelgi

Klifurfestival Ísalp og Klifurhússins verður næstu helgi á Hnappavöllum en heilmargt spennandi mun gerast þar. Efnt verður til tveggja keppna á laugardeginum þar sem annars vegar verður keppt í hraðakeppni og hins vegar í svokölluðu Kílómetraklifri, sem er nýjung í klifurmenningu á Íslandi. Bæði mótin eiga að höfða til allra og treystum við á að sjá klifrara á öllum klifurstigum um helgina.


mynd: Ágúst Kr. Steinarrsson

Klifurfestival Ísalp og Klifurhússins verður næstu helgi á Hnappavöllum en heilmargt spennandi mun gerast þar.

Efnt verður til tveggja keppna á laugardeginum þar sem annars vegar verður keppt í hraðakeppni og hins vegar í svokölluðu Kílómetraklifri, sem er nýjung í klifurmenningu á Íslandi. Bæði mótin eiga að höfða til allra og treystum við á að sjá klifrara á öllum klifurstigum um helgina.

Sú hefð hefur komist á að greitt er 500 króna “kamargjald” um þessa helgi en það er hugsað til að dekka viðhaldkostnað kamarsins og fjármagna nýja borðið.

Kílómetraklifurmótið verður þannig að keppst verður um að ná að leiða sem flestar leiðir og þannig safna sem flestum klifruðum metrum. Kílómetraklifrið stendur yfir á laugardeginum frá klukkan 10 til 18 og verður skráningarblöðum dreift.

Hraðaklifrið í Páskaliljum verður svo í beinu framhaldi af Kílómetraklifrinu og verður klifrað “top rope”. Hver keppandi fær eitt tækifæri. Þeir sem ekki þekkja til þá eru Páskaliljur nokkuð auðveld leið og er, samkvæmt minni, gráðuð 5.8. Þó að sigur sé vissulega nógu mikill hvati fyrir því að taka þátt þá verða vinningar í boði Klifurhússins og Ísalp.

Loks viljum við vekja athygli á að efnt verður til ljósmyndasamkeppni sem verður í sama anda og á ísklifurfestivalinu í vetur.