
Skrifað af: Ágúst Kristján Steinarrsson Fimmtudagur, 10. maí 2007 22:01

Nú er komið að því!
Hin árlega BANFF kvikmyndasýning verður haldin í Háskólabíói
15. og 16. maí næstkomandi. Um er að ræða stuttmyndir af
afrekum og ævintýrum einstaklinga sem stunda fjallamennsku,
snjóbretti, fjallahjólamennsku, klifur, kajak, base jumping og
fleira. Myndirnar eru eins fjölbreyttar og þær geta verið en
allar eiga það sameiginlegt að fjalla um samspil einstaklingsins
við náttúruna þar sem adrenalín og góð skemmtun eru
sjaldan fjarri.
Sýningarkvöldin verða tvö og verður myndefnið mismunandi á
þessum tveimur kvöldum. Um er að ræða samtals fjóra tíma
af ævintýraþrá, adrenalíni og útivist. Sýningar verða í Háskólabíó
dagana 15. og 16. maí og hefjast sýningar klukkan 20:00.
Verð á hverja sýningu er 1000 krónur en 800 fyrir félagsmenn
Ísalp.
Nánari upplýsingar um sýningarnar má finna á heimasíðu
BANFF auk þess sem hægt er að sjá kynningarmyndband
á netinu:
og
.
Dagskrá:
15. Maí:
-Anomaly (skíði/snjóbretti)
-First ascent: Tailand (klifur)
-Patagonia – Travel to the end of the world (leiðangur)
-The Simplicity Factor (klifur)
-Awberg (ísklifur)
-Roam (fjallahjól)
16. Maí:
-Yes to the No (snowboarding)
-Unchained (fjallahjól)
-Fatimas Hand (klifur/BASE jump)
-Kids who Rip (skíði/snjóbretti/hjólabretti/surf)
-Didier vs. the Cobra (klifur)
-Mission Epiocity (kajak)