
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Föstudagur, 20. apríl 2007 15:24

Eins og greint hefur verið frá áður hefur Cintamani í samstarfi við ÍSALP stofnað sérstakan leiðangurssjóð sem styrkir metnaðarfulla íslenska klifur- og fjallamennsku leiðangra. Þegar hafa umsóknir borist um styrkinn en ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest til 31. apríl. Allir sem huga að fjallaferðum í fjarlægum (eða nálægum) heimshlutum eru eindregið hvattir til að nýta sér þetta rausnarlega tilboð.
Nánari upplýsingar um sjóðinn ásamt umsóknareyðublaði er að finna neðst á fosíðunni.