
Skrifað af: Smári Stefánsson Fimmtudagur, 12. apríl 2007 10:49

Toppadagurinn tók um 12 tíma og voru Arnar og Berglind mjög ánægð með árangurinn "seinustu 600-700 metrana skiptumst við á að klifra í ís, brölta í klettum og svo snjór inn á milli. Sigum við niður í 10 spönnum og gengum þess á milli. Fallegt fjall og frábær leið!!!"
Tindurinn hefur verið klifinn áður en það er ekki vitað hversu oft og er það í athugun. Fyrstu vísbendingar benda til að hann hafi verið klifinn 2-3 áður.
Frábært afrek, ÍSALP óskar Arnari og Berglindi til hamingju.