Borði

Abby Watkins

Eins og fram hefur komið dvelur Abby Watkins ásamt félögum úr Team North Face hér á landi um þessar mundir.


mynd: mynd fengin að láni af síðu Team NF

Tekist hefur að plata Watkins til að kíkja í félagsaðstöðu ÍSALP að Skútuvogi 1G, föstudaginn 20. apríl. Þar ætlar Watkins að segja frá og sýna myndir úr ferð sinni á Cholatse í Nepal árið 2005. Leiðangurinn vakti athygli þar markmiðið með honum var ekki einungis að klífa tindinn, sjá nánar á http://www.mounteverest.net/story/TheHimalayanCataractProjectteamSummitsCholatseMay122005.shtml

Allir að mæta og kíkja á þetta hörkukvendi og sötra öl í boði klúbbsins, daginn eftir er svo tilvalið að skella sér með klúbbnum í ferð á Tindfjöll