Borði

Ljósmyndasamkeppni

Ákveðið hefur verið að efna til ljósmyndasamkeppni meðal félaga ÍSALP. Myndirnar verða að vera teknar á nýafstöðnu ísfestivali í Kaldakinn


mynd: Hallbera Gunnarsdóttir

Vitað er að mikið var tekið af myndum á festivalinu, nú er komið að því að finna þá flottustu. Sendið inn ykkar flottustu myndir, að hámarki þrjár frá hverjum þátttakenda, á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Dómnefnd skipuð tveim reyndum ljósmyndurum og einum fulltrúa stjórnar mun fara yfir þær myndir sem berast. Höfundar þriggja bestu myndanna verða verðlaunaðar veglega með vinningum frá Fjallakofanum og hver veit nema þær birtist í hinu umtalaða ársriti.

Nú er bara að fletta í gegnum allar myndirnar og senda þær bestu. skilafrestur er 20. apríl