Borði

Afmælisárið fer vel af stað

30 ára afmælisár klúbbsins fer mjög vel af stað og starfið hefur blómstrað það sem af er árinu. Má þar nefna námskeið í mix klifri, framhaldsnámskeið í ísklifri...


mynd: Hallbera Gunnarsdóttir

... Vel heppnað ísklifurfestival og telemarkhelgi og frábærar myndasýningar Albert Leichtfried og Markus Bendler annars vegar og Steve House hins vegar.

Leiðangursjóði í samstarfi við Cintamani hefur verið komið á og er umsóknarfrestur þar 31. mars og því enn hægt að sækja um þar (upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á isalp.is).

Afmælisferðinni á Skessuhorn þurfti, því miður, að fresta vegna veðurs. Hún hefur nú fengið nýja dagsetningu, 14. apríl, og eru skráningar þegar farnar að berast.

Þetta er bara það sem þegar hefur verið gert og enn níu mánuðir eftir af afmælisárinu. Stjórnin er farin að huga að sumardagskránni sem mun innihalda marga góða og spennandi viðburði, þ.á.m. skemmtilegar nýjungar, sem verða kynntir von bráðar.

Það eru því skemmtilegir tímar framundan með ársriti og fleiri skemmtilegheitum.