Borði

Telemarkhelgin 16.-18. mars

Í fyrsta skipti í mörg ár, höfum við ekki áhyggjur af snjóalögum, - það er nægur snjór í Hlíðarfjall. Snjósöfnunargirðingar eru gjörsamlega á kafi. Snjóspá er í kortunum, rétt fyrir helgina, þannig að útlitið er bjart.


mynd: Bassi

NÝTT - Fjallaskíðakeppni

Einn dagskrárliður Telemarkhelgarinnar verður fjallaskíðakeppni sem haldin verður á sunnudeginum. Öllum er velkomið að taka þátt í þessari grein. Keppnin er bæði fyrir telemark- og fjallaskíðaunnendur, keppt verður bæði í kvenna- og karlaflokki. Keppnin fellst í því að ganga, skinna og skíða ákveðinn hring í kringum
skíðasvæðið. Þetta er skemmtileg þolraun sem tekur tæpan klukkutíma, vegleg verðlaun eru í boði fyrir alla flokka.

Engu verður til sparað, enda keppnin í umsjón Íslenskra fjallaleiðsögumanna. Fjallaljónin Friðjón og Elín skipulögðu keppnina, skráning hefst við Strýtuskála kl. 12:00 og keppnin sjálf hefst kl. 13:00.

Að vanda verður boðið upp á hefðbundna dagskrá yfir Telemarkhelgina.

Aðalstyrktaraðili Telemarkhelgarinnar er Útivera, hægt verður að fylgjast með fréttum helgarinnar á www.utivera.is.
Einnig mun grein og myndir af helginni, birtast í næsta tölublaði af Útiveru.

Helstu úrslit birtast einnig hér á www.isalp.is.

Nánari lýsing á dagskrá helgarinnar og keppnisliðum.


Stökkkeppni
Keppnin verður haldin föstudaginn 16. mars í Hlíðarfjalli og hefst kl. 19:00. Skráning í keppnina er, þegar þor mann er nægilegt, við Strýtuskála. Keppnisfyrirkomulag verður með hefðbundnum hætti, hver og einn stekkur með sínu nefi en keppendur þurfa að lenda í telemarkbeygju. Keppt verður í kvenna- og karlaflokki. Keppendur mega stökkva eins oft og þeir vilja, engin sérstök stökkröð, stokkið er til 20:00
  • Keppendur stökkva á eigin ábyrgð
  • Umsjónarmenn keppninnar bera enga ábyrgð á því ef keppendur slasast
  • Umsjónarmenn keppninnar er lið Garðbæinga, Sigfríð og Gísli

Samhliðasvigkeppni
Keppnin verður haldin laugardaginn 17. mars í Hlíðarfjalli og hefst kl.11:00. Skráning hefst kl.10:00 við Strýtuskála Keppnisfyrirkomulag verður með hefðbundnum hætti, tveir og tveir takast á og sá sem kemur fyrstur yfir marklínu fer áfram í næstu umferð.

Keppt verður í kvenna- og karlaflokki Dregið verður úr nöfnum keppenda; um það hverjir takast á hverju sinni. Ef keppandi lætur ekki sjá sig við rásmark á tilsettum tíma verður nýtt nafn dregið. "Telemarka" skal niður brautina; lyfta hæl efra skíðis og skjóta neðra skíði fram fyrir hitt í hverri einustu beygju. Þrátt fyrir há-alvarlega keppni eru einstöku bros og jafnvel léttur hlátur leyfður meðan á keppni stendur! Umsjónarmenn keppninnar áskilja sér allan rétt til að breyta og bæta keppnina ef þurfa þykir Umsjónarmenn keppninnar er lið Reykvíkinga, Brynja.

Búningakeppni
Keppnin stendur yfir allan laugardaginn. Veitt verða verðlaun fyrir einstaklings- og liðabúning.

Sundbolti, rauðhærðir á móti rest
Keppnin verður haldin laugardaginn 17. mars í sundlauginni að Þelamörk og hefst kl.18:30 Skráning í keppnina hefst kl.18:29 í heita pottinum, - ekki er hleypt ofan í fyrr en kl. 18:00. Keppnisfyrirkomulag verður með hefðbundnum hætti, tvö lið, allir á móti þeim rauðhærðu Keppnisfyrirkomulag. Liðin skora sem mest! Keppt verður í einum flokki í einum potti eftir bauk.

Telemarkhóf Laugardagskvöldið 17. mars
Á veitingarhúsinu Vélsmiðjunni og húsið opnar kl. 20:00. Matur og ball, verð kr. 1.500 kr. Verðlaunaafhending. Dansað fram eftir... Skráning nauðsynleg

Telemark- og fjallaskíðakeppni
Keppnin verður sunnudaginn 18. mars í Hlíðarfjalli og hefst kl.13:00. Skráning í keppnina hefst kl.12 við Strýtuskála. Keppnisfyrirkomulag: Keppendur verða ræstir allir í einu og hver og einn keppandi gengur, "skinnar" og skíðar fyrirfram ákveðinn hring með léttum verkefnum á leiðinni. Keppt verður í kvenna- og karlaflokki. Keppt verður í Telemark- og fjallaskíðaflokki. Sá sem kemur fyrstur í mark í hverjum flokki er sigurvegari í sínum flokki. Hér áskilur keppnisstjórn rétt til að skemmta áhorfendum. Umsjónarmenn keppninnar eru Íslenskir fjallaleiðsögumenn, Friðjón og Elín og Sig. Sig. Umsjónarmenn keppninnar áskilja sér allan rétt til að breyta og bæta keppninni ef þurfa þykir.