Borði

Afmælisferð á Skessuhorn

Þann 11. mars n.k. verður ÍSALP 30 ára og efnir klúbburinn, af því tilefni, til ferðar á Skessuhorn. Þetta er vel við hæfi þar sem fyrsta skipulagða ÍSALP ferðin var einmitt þangað.


mynd: Ísalp

Þann 11. mars n.k. verður ÍSALP 30 ára og efnir klúbburinn, af því tilefni, til ferðar á Skessuhorn. Þetta er vel við hæfi þar sem fyrsta skipulagða ÍSALP ferðin var einmitt þangað.

"Skessuhorn freistar göngumanna meira en mörg önnur fjöll... Á Skessuhorn liggja nokkrar áhugaverðar klifurleiðir, t.d. upp norðausturhrygginn (ekki erfið) og upp snarbrattan norðvesturvegg fjallsins (erfiðar leiðir. Göngumenn geta hins vegar farið á hornið með því að ganga inn í hvilftirnar sem eru hvor sínu megin við hornið." Þetta skrifar Ari Trausti Guðmundsson, í bók sinni Íslensk fjöll.

Aðstæður munu að sjálfsögðu ráða því hvaða leiðir hægt verður að fara, en gaman væri ef hægt væri að fara fleiri en eina. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Stjórnin vill því hvetja alla, jafnt göngugarpa, sófaklifrara og hardcore klifrara til að skrá sig hér á vefnum. Þetta verður gaman.