
Skrifað af: Andri Bjarnason Föstudagur, 29. október 2004 17:13
Í gærkveldi hélt Leifur Örn Svavarsson glæsilega myndasýningu í húsnæði klúbbsins í Skútuvogi.
Leifur sýndi fjalla-og skíðamyndir frá svokölluðu Liverpool-landi við Scoresbysund á austurströnd Grænlands. Glæsilegar myndir frá mögnuðu svæði.
Seinni hluti sýningarinnar var frá ferð Leifs og Ágústar Guðmundssonar á fjallið Denali í Alaska. Flottar myndir og lifandi og skemmtileg frásögn.
Mæting á sýninguna var með besta móti, öll sæti nýtt stemmningin eftir því góð.