Epískt Telemarkfestival

Telemarkhelgin er að baki. Ótrúlega vel heppnuð þökk sé skipuleggjendum, þátttakendum, veðurguðunum og velviljuðum styrktaraðilum.


mynd: Björk Hauks

Maður er svona rétt á ná sér niður á jörðina eftir hreint út sagt magnaða helgi í Hlíðarfjalli.

Þetta byrjaði allt saman á föstudag í fínu utanbrautarfæri.
Strýtan var opin til kl. 21 sem var besta mál og nýttu sér það margir.

Aðfaranótt laugardags snjóaði fullt og skartaði fjallið sínu fegursta á laugardeginum.
Keppnis- og dómnefnd með Góla fremstan í flokki var ekkert að grínast með reglurnar sem birtust hér á síðunni.
Tímasetningar stóðust og keppendur fengu ekki að komast upp með neitt múður né tilraunir til svindls.
Brautin var heldur ekkert grín, þétt á milli hliða í byrjun og tveir pallar.
Búningakeppnin er ekkert minna vinsæl þetta árið en hin fyrri. Fyrir ótrúlega tilviljun þá mættu í fjallið tvö lið sem skörtuðu hawaiísku lúkki. Glitta mátti í "ber" brjóst og pálmatré!
Nashyrningarnir mættu loks í líki nashyrninga en ekki bara með afrógreiðslu. Sumir vildu þó meina að þeir hefðu nú breyst í flóðhesta.

Eftir æsispennandi keppni í samhliðasvigi, bæði í kvenna og karlaflokki stóðu upp 2 sigurvegarar, Tómas Sigursteinsson (norðanmaður en samt ekki eða hvað ?) og Lilja nokkur Norðankona án alls vafa. Óskum við þeim til hamingju með sigurinn.
Var mál manna að Tommi hefði komið vel á óvart með sínum aggresíva og djúpa stíl! Tommi tryllti svo sannarlega lýðinn.

Að keppni lokinni gafst tækifæri til að prófa tandem telemark skíðin sem Nashyrningarnir mættu með. Þau voru þannig græjuð að á hvoru skíði voru tvær bindingar þannig að tveir skíðamenn renndu sér samtímis á skíðunum... fróðlegt að sjá!

TAT-arar voru búnir að lofa massa aprés ski á Glerá. Þeir stóðu allhressilega undir væntingum. Þegar hersingin kom skíðandi niður úr Hlíðarfjalli blasti við varðeldur, tjald, veitingasala og undir hljómuðu undurljúfir austurískir aprés ski europop hljómar. Hver kannast ekki við DJ Ötzi eða Anton aus der Heide?
Klárlega besta aprés ski ársins og atburður sem er kominn til að vera.
Jaegerte og bretzel runnu ljúflega niður og næsta stopp var á Vélsmiðjunni. Þar mættu 90 manns á Telemarkhófið!
Eyfirskt lambakjet var vel þegið og slökkti það ekki í mönnum þorstann.

Á meðan borðhaldi stóð veittu Bassi og Valli alla þá fínu vinninga sem okkur hafði áskotnast.
Sigurvegarar fengu flotta skíðabakpoka frá Fjallakofanum og Cintamani Center á Laugavegi 11.
Í kjölfarið var fjöldinn allur af fínum vinningum dreginn út og komu þeir frá Cintamani Center, Heldi-Europcar bílaleigu, Skíðaþjónustunni á Akureyri og Útilíf.
Valinn var telemarkari ársins. Fyrir valinu varð Helga Björt Möller sem hefur svo sannarlega haft djúpstæð áhrif á þróun Telemarkfestivalsins undanfarin ár. Sannarlega vel að titlinum komin.

Að lokum var laaaang-stærsti vinningur sem nokkrum sinnum hefur fengist á þessu festivali, dreginn út.
Góðvinur ÍSALP og Telemarkfestivalsins, hann Rúnar Óli kom færandi hendi frá Ísafirði. Fyrirtæki hans og Sigurðar Jónssonar (Búbba), Borea Adventures gaf vikulanga skútu/skíðaferð á Jökulfirði.
Vinningurinn er að þeirri stærðargráðu að fólk féll nánast í ómegni af spenningi er komið var að útdrættinum.
Féll vinningurinn í skaut formanns vors, Freys Inga Björnssonar!
Telja menn að þetta séu skýr skilaboð frá skíðaguðinum þess efnis að nú sé komið að því að formaðurinn komi skíðagetu sinni á sama level og geta hans í ísklifri er á. Til hamingju Freyr.

Og til hamingju Borea Adventures fyrir að stela senunni og bjóða upp á svona djúsí og spennandi ferðir.
Klárlega eitthvað sem allt ævintýra og fjallafólk þarf að prufa. Ferð með ykkur.
www.boreaadventures.com

Að lokum...
Þúsund þakkir til þeirra sem heiðurinn eiga af skipulagningunni, Bassi & Böbbi, TAT-arar, Nashyrningar, Garðbæingar fyrir brautarlagningu og keppnis-keppnisskipulagningu. Hlíðarfjall fyrir aðstoð og lengdan opnunartíma.
Allir þeir sem stóðu á hliðarlínunni og hvöttu keppendur, allir þeir sem mættu í búningum, allir þeir sem voru eldhressir og allir þeir sem tóku þátt í að skapa þessu mögnuðu stemmningu sem einkennir Telemarkfestivalið ár hvert. Þúsund þakkir og sjáumst að ári liðnu.