Heimasíðan

Heimasíðan lá niðri í tæpa viku en er eins og sjá má komin í loftið aftur!

Við lifum á gerfihnattaöld og erum því háð allskyns tækni og ólíkindatólum í daglegu lífi okkar. Eins og þekkt er aukast líkur bilunum tæknitóla eftir því sem þau verða flóknari í samsetningu. Því fór sem fór. Vefurinn okkar lagðist á hliðina og lá rétt tæpa viku. Nú hefur vandamálið verið lagfært (þökkum Helga Borg fyrir það) og hægt að nota vefinn að nýju.

Ísalpvefurinn hefur þjónað ísölpurum vel undanfarinn áratug. Nú líður senn að því að núverandi vef verði lagt og nýr og nýtískulegri tekinn í gagnið. Húrra fyrir því!
Á meðfylgjandi mynd er smá teaser að því sem koma skal.