
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Mánudagur, 09. febrúar 2009 12:46

Ísalp hefur samið um gistingu við Jón Þórðarson á Bíldudal. Um er að ræða uppábúin rúm í leiguíbúðum, hverri íbúð fylgir að sjálfsögðu baðherbergi og eldhús. Að auki fylgir þurrkhús hvar menn geta þurrkað föt og búnað eftir klifurdaginn. Sameiginlegur kvöldverður, alíslensk kjötsúpa, verður framreidd laugardagskvöldið.
Verð fyrir gistingu um helgina (föstudag - sunnudags) og mat um
laugardagskvöldið er 5500 fyrir félaga í Ísalp, 6500 fyrir aðra.
Til þess að einfalda umstangið biðjum við þátttakendur um að borga fyrir gistinguna inn á reikning Ísalp sem fyrst:
reikningur: 0111-26-001371
kennitala: 580675-0509
Vinsamlegast sendið póst á gjaldkera klúbbsins í leiðinni,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Þeir sem vilja framlengja dvölina á Bíldudal, annaðhvort fyrir framan eða aftan festivalið, er bent á að hafa samband við Jón (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, s: 894 1684). Næg gistirými eru í plássinu fyrir her manns.
Ef menn hafa e-r spurningar varðandi festivalið, gistinguna eða aðra tilhögun er sjálfsagt að skjóta pósti á undirritaðan, eða bara taka upp tólið og hringja!
Skabbi
skabbi(at)gmail.com
864 5834