Aðalfundarboð

Aðalfundur ÍSALP verður haldinn 5. febrúar kl. 20.

Fimmtudagskvöldið 5. febrúar kl. 20 verður aðalfundur Íslenska alpaklúbbsins haldinn að Skútuvogi 1G.
Verkefni aðalfundar eru eftirfarandi:

1. Kosning fundarstjóra sem síðan skipar fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Ársreikningar lagðir fram til samþykktar, undirritaðir af tveimur skoðunarmönnum.
4. Lagabreytingar.
5. Kjör formanns Ísalp og meðstjórnenda.
6. Kjör uppstillingarnefndar.
7. Kjör tveggja skoðunarmanna ársreikninga.
8. Ákvörðun árgjalds næsta árs.
9. Önnur mál.


Félögum er bent á að kynna sér lög klúbbsins sem samþykkt voru síðastliðið vor, en þau má finna í frétt hér á undan og á undirsíðu. Þar er að finna upplýsingar hvernig skuli bera sig að ætli maður að bjóða sig fram, bera fram lagabreytingartillögu eða vilji gefa öðrum félaga umboð til að nýta atkvæði sitt.

Með ósk um fjölmennan og góðan aðalfund,
Stjórn ÍSALP