
Skrifað af: Freyr Ingi Björnsson Laugardagur, 06. desember 2008 19:48
Óhapp varð á ísklifurnámskeiði í Hörgárdal í dag þegar einn nemenda datt úr axlarlið.
Óhappið varð með þeim hætti að neminn sem hafði klifrað um 3 metra upp í WI-2/3 ísvegg þegar liðhlaup verður er hann studdi sér við klettavegg með þeirri hönd sem axlarhlaupið varð á.
Hann hefur átt við liðhlaupsvandamál að stríða um nokkurt skeið og var þetta því vandamál sem bæði kennari og aðrir nemendur vissu af.
Þegar ljóst er hvað hefur gerst hringir leiðbeinandinn í Sigurð bónda á Staðarbakka og biður hann um aðstoð.
Einnig hringir hann í neyðarlínuna til að fá aðstoð björgunarsveitar við að koma hinum slasaða niður á veg. Sigurður á Staðarbakka kom þá á dráttarvél og keyrði yfir ána beint upp að klettunum þar sem óhappið varð og ferjaði svo hinn slasaða sömu leið til baka og alla leið upp á veg þar sem sjúkrabíll tók við honum. en um klukkustundar gangur er að Staðarbakka þar sem óhappið varð.
3 klukkustundum eftir óhappið var hinn slasaði kominn á sjúkrahús á Akureyri.
Öðrum nemendum á námskeiðinu verður boðið að láta til sín taka á ísklifurnámskeiði síðar í vikunni en óhappið varð í fyrstu ferð upp ísinn og bíða því eflaust margir spenntir eftir að fá prófa hið göfuga sport sem ísklifur er.
Hinn slasaði fær svo ísklifurkennslu um leið og öxlin hefur jafnað sig.
Ísalp óskar hinum slasaða góðs bata og þakkar bændum og björgunaraðilum skjót viðbrögð.