Finnska leiðin og fleira fallegt

Háfjallagarpurinn Veikka Gustafsson er á leiðinni til Íslands og er spenntur fyrir að hitta Ísalpara.


mynd: haglofs.se

Frækni Finninn Veikka Gustafsson er á leiðinni til Íslands. Hann vill nýta ferðina vel og ætlar að hitta Ísalpara í húsakynnum Kaffi Kúltúra föstudagskvöldið 21. nóvember kl. 20. (Á Hverfisgötunni gegnt Þjóðleikhúsinu)
Veikka hefur iðinn við að klífa 8000 metra tinda og á nú aðeins eftir að stíga einn af 14, það er Gasherbrum 1. Veikka hefur undanfarið klifrað með Ed Viesturs.
Finninn hefur ekki aðeins sett markið á hæstu fjöllinn. Hann hefur einnig farið nokkra leiðangra á Suðurskautið. Fór hann meðal annars með Pat Degermann í 17. daga göngutúr á Suðurskautinu til að kanna óþekktan fjallgarð. Þar klifur þeir 5 áður ókannaða tinda.
Einhverjir kunna að hafa hitt félaga hans Pat Degermann hér síðasta vetur. Gerum við ráð fyrir að Veikka sé ekki síðri félagsskapur og fyrirlesari... sumsé mjög hressandi og fullur andagiftar.


Þeir sem mættu í pólska pulsupartýið og myndasýninguna muna kannski eftir Bretunum sem þar voru einnig mættir. Þeir voru leiðsögumenn á vegum Paul Walker/ Tangent expeditions. Paul Walker skipuleggur leiðangra til Grænlands og má líklega segja að hann sé einn reyndasti í þeim bransanum.
Paul þessi hafði samband við ÍSALP nýverið og vildi kanna hvort einhver okkar meðlima hefði áhuga á að vera samferða til A-Grænlands næsta vor-sumar. Flogið er frá Íslandi með Twin Otter vél sem var í eigu Flugfélags Íslands. Ætli maður á annað borð að leggjast í víking til A-Grænlands er um að gera að vera í samfloti. Áhugasamir hafi samband í gegnum heimasíðu Paul Walker:
www.climbgreenland.com


Það eru aðrar og ekki minna spennandi leiðir til að komast á austurströnd Grænlands. Félagar okkar á Ísafirði, þeir Rúnar Óli Karlsson og Sigurður Jónsson reka ferðaþjónustufyrirtækið Borea Adventures. Þeir bjóða upp á ferðir á 60 feta skútu sinni, Auroru. Meðal áfangastaða eru Jökulfirðir sem og A-Grænland. Ófáir Ísalparar hafa farið með þeim í vorskíðaferð í Jökulfirði en það ku vera ómetanleg lífsreynsla.
Heimasíða þeirra:
www.boreaadventures.com

Að síðustu viljum við minna á komandi ísklifurnámskeið. Í samvinnu við Íslenska fjallaleiðsögumenn er boðið upp á byrjendanámskeið í ísklifri. Hefst það miðvikudagskvöldið 26. nóvember og er framhaldið á laugardeginum. Skráning er hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í síma 5879999.

Jökull Bergmann fjallaleiðsögumaður býður norðanmönnum upp á ísklifurnámskeið og hefst það 3. desember. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 698 9870.