Utanbrautarbandalag

Stór hópur fólks, bæði innan og utan ÍSALP, stundar að renna sér utan hefðbundinna skíðaleiða, hvort sem er á skíðum eða snjóbretti. Þrátt fyrir það fer ekki mikið fyrir þessum hópi, sérstaklega ekki á vettvangi alpaklúbbsins. Nú er tími til kominn til að ráða bót á þessu og byrja í tæka tíð áður en fjöllin fyllast af snjó

Það var á opnu húsi í síðustu viku sem lífi var blásið í hugmynd sem varð til síðasta vetur á meðal fólks í leit að púðri. Að stofna bandalag innan ÍSALP, Utanbrautarbandalag.
Utanbrautarbandalaginu er ætlað að vera vettvangur fyrir fólk sem lifir fyrir utanbrautarrennsli, eða hefur að minnsta kosti gaman að því. Hvort sem er á einu priki eða tveimur, sumsé skíðum eða bretti.
Markmið með stofnun þessa bandalags er að hvetja liðsmenn til að vera sýnilegri og að þjappa saman þessum stóra hópi. Með stofnuninni skapast vettvangur fyrir fólk til að kynnast öllum hinum sem sportið stunda, til að renna sér meira og betur, læra eitthvað nýtt, skiptast á hugmyndum að ferðum og til að fá fleiri til að vera með.
Margar hugmyndir hafa þegar komið fram að því fyrir hverju bandalagið á að standa fyrir. Til umræðu hefur komið að standa fyrir reglulegum eftir-vinnu-ferðum á fjall í nágrenni Reykjavíkur, fjallaskíðafestivali og námskeiðum af ýmsu tagi t.d. snjóflóðanámskeiði. Einnig hefur verið rætt um að koma á samstarfi við skíðasvæðin og gott væri að hefja formlega skráningu á skíðaleiðum.
Starf Utanbrautarbandalagsins hefst á prepp-kvöldi fyrsta miðvikudag nóvembermánaðar. Á prepp-kvöldið mætum við með skíðin, brettin, skinnin, straujárn, vaxið og þjalirnar. Allar græjur til að gera skíðin tilbúin fyrir veturinn. Þeir sem ekki eiga rennslisgræjur en eru forvitnir og vilja vita meira geta kíkt við og spjallað við alla spekingana.
Ekki er líklegt að í bráð þurfi að berjast um púðurlínurnar á Íslandi og því er að sjálfsögðu tekið fagnandi er fleiri bætast í sportið.
Þeir sem að hugmyndavinnu hafa komið eru auk margra annarra Sveinborg Hlíf, Björk Hauks, Kári Sævarsson, Guðjón Björns, Smári Stefánsson, Róbert Þór, Þórður Bergsson, Elsa Gunnarsdóttir og Freyr Ingi Björnsson.
Við hvetjum alla áhugasama til að mæta miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20 í félagsaðstöðu ÍSALP og vera með í Utanbrautarbandalaginu.