
Skrifað af: Smári Stefánsson Fimmtudagur, 25. september 2008 11:22

Nafn: Kári Erlingsson
Starf/nám (hvaða):
Rannsóknarlögreglumaður – Kriminalpolizei. Mein name ist Derrick, dein Mann ist tot osfrv....
Af hverju Shivling?
Arnar og Berglind buðu mér og tvíbbunum í heimsókn, sýndu okkur vídjó af leiðangri á Shivling og helltu í okkur fullt af bjór. Endaði með að við öskruðum allir Hell Yeah í lok kvöldsins...
Kanntu eitthvað orð á hindí?
Nei, virkar ekki alltaf í útlöndum að tala bara Þingeysku, hátt og skýrt?
Hver af leiðangursmönnum er fyndnastur?
Eiríkur. Hann er klikkaðslega fyndinn. Eða kannski er bara fyndið hvað hann er klikkaður..
Einhver bók með í för, hvaða?
Væri töff að taka Njálu bara upp á attítjútið, en á reyndar alveg eftir að velja bók. Mér var bent á bók eftir Salomon Rushdi sem fjallar um þetta svæði, en hún á víst að vera svo hrikalega sorgleg að fólk grætur og snöktir yfir lestrinum. Veit ekki hvort ég get boðið ferðafélögunum upp á ekkasog og væl í mér allan tímann...
Paradís á jörðu, er sá staður til? Hvar er hann?
Eh já, Mývatnssveit...
Eitthvað sem þú mátt alls ekki gleyma að gera fyrir 1. okt.?
Biðja um mánaðarfrí í vinnunni.... Eða ég skrópa bara, þeir fatta það aldrei....
Á hvernig broddum verður þú?
Gömlu góðu Grivel Rambo broddunum mínum. Var svo vitlaus að fá mér ekki snjóvörn/gúmmí undir broddana þegar ég keypti þá og hafði aldrei komið því í verk. Hélt að það væri vonlaust í dag að fá svoleiðis sem passaði en sjá, átti ekki Útilíf bara heilan kassa af svoleiðis! Leiðbeiningarnar byrjaðar að gulna og morkna meira að segja...
Telemark eða fjallaskíði?
Telemark telemark telemark. Free your heel and your mind will follow...
Kletta- eða ísklifur?
Ísklifur, allt of mikið af smáatriðum í hinu. Troða puttunum hingað og þangað úffff....
Hafragrautur eða cocoa puffs?
Hafragrautur í sveitinni, cocoa puffs á jólunum. Þannig var það alltaf í denn allavega.
Í dag opna ég bara skúffurnar í vinnunni og stel einhverju af vinnufélögunum í morgunmat....
Nafn: Gunnar Sverrir Ragnars
Starf/nám (hvaða): Málari
Af hverju Shivling? : Arnar og Berglind skipulögðu þessa ferð og þekktu góðan fararstjóra . Okkur bauðst til að koma með og ég greip gæsina.
Kanntu eitthvað orð á hindí? Ekki eitt orð. Eg ætla mér þó að læra e-h orð eins og bjóða góðan dag. það hefur alltaf reynst vel að kunna nokkur orð er mér sagt.
Hver af leiðangursmönnum er fyndnastur? Kári
Einhver bók með í för, hvaða? Su Doku
Paradís á jörðu, er sá staður til? Ísland
Eitthvað sem þú mátt alls ekki gleyma að gera fyrir 1. okt.? Taka vegabréfið með
Á hvernig broddum verður þú? göngubroddum
Telemark eða fjallaskíði? Telemark-skíði
Kletta- eða ísklifur? klettaklifur á sumrin, ísklifur á veturna.
Hafragrautur eða cocoa puffs? Hafragrautur
Nafn: Eiríkur G. Ragnars
Starf/nám (hvaða): Rafvirki
Af hverju Shivling? : 1. lagi af hverju ekki. 2. lagi af því að það er þarna. 3. lagi þá var búið að ákveða þetta fyrir mig. 4. lagi mjög fallegt og tignalegt fjall
Kanntu eitthvað orð á hindí? Ekki stakt orð. En er að læra að seigja
HVAR ER NÆSTA KLÓSETT! á hindísku.
Hver af leiðangursmönnum er fyndnastur? Gætti verið ég og oftast
ómeðvitað þar sem ég bulla svo mikið, og oft verður þetta bull mjög
fyndið. En eins og ég ef oft sagt ef þú getur hleigið af sjálfum
þér, þá ert þú í góðum málum.
Einhver bók með í för, hvaða? No shortcuts to the top eftir Ed
Viesturs
Paradís á jörðu, er sá staður til? Hvar er hann? Mývatn,
Hvalvatnsfjörður, Ásbyrgi, Borgarfjörður eystri, Eyjafjarðarsveit,
Íshólsvatn-Bárðardalur, Skíðadalur og gætti haldið endalaust áfram.
Eitthvað sem þú mátt alls ekki gleyma að gera fyrir 1. okt.? Tæma
ískápinn heima hjá mér.
Á hvernig broddum verður þú? Mannbroddum
Telemark eða fjallaskíði? Telemark-skíði eins og er, þar sem ég á
ekki fjallaskíði
Kletta- eða ísklifur? Klettaklifur, kannski vegna þess þá verður mér
ekki alltaf svo fjandi kallt eins og í Ísklifri.
Hafragrautur eða cocoa puffs? Hafragrautur að sjálfsögðu.
Nafn: Arnar Þór Emilsson
Starf/nám (hvaða): Flugmaður
Af hverju Shivling? Hrikalega flott fjall. Búinn að vita af því lengi og langað til að fara á toppinn.
Kanntu eitthvað orð á hindí? Já bara búinn að gleyma þeim!
Hver af leiðangursmönnum er fyndnastur? Kári er rosalegur.
Einhver bók með í för, hvaða? Ársrit Ísalp og nýi Cintamani bæklingurinn!
Paradís á jörðu, er sá staður til? Hvar er hann? Mörgum sinnum komið í paradís, það er enginn einn staður.
Eitthvað sem þú mátt alls ekki gleyma að gera fyrir 1. okt.? Kyssa mömmu áður en lagt er í hann.
Á hvernig broddum verður þú? Mannbroddum. Grivel G14. Rosa beittum.
Telemark eða fjallaskíði? Telemark er bara meira gaman.
Kletta- eða ísklifur? Ís á veturna og svo klettar á sumrin segir sig sjálft!
Hafragrautur eða cocoa puffs? Hunangs Cheerios. Annars er það cocoa puffs kynslóðin sem er að rokka feitt.
Nafn: Berglind Aðalsteinsdóttir
Starf/nám (hvaða): Læknir.
Af hverju Shivling? Fallegt fjall sem mig hefur langað uppá frá því ég sá það fyrst.
Kanntu eitthvað orð á hindí? Já "kaanaa" = matur!!
Hver af leiðangursmönnum er fyndnastur? Kári fær mitt atkvæði.
Einhver bók með í för, hvaða? Ætli það verði ekki Conquistadors of the Useless eftir Lionel Terray og kannski fleiri.
Paradís á jörðu, er sá staður til? Hvar er hann? Ó já fullt af þeim fyrir norðan, til dæmis Hvalvatnsfjörður í maí.
Eitthvað sem þú mátt alls ekki gleyma að gera fyrir 1. okt.? Brýna ísaxirnar og pakka tannburstanum.
Á hvernig broddum verður þú? Grivel G14.
Telemark eða fjallaskíði? Telemark er eina vitið.
Kletta- eða ísklifur? Bæði betra.
Hafragrautur eða cocoa puffs? Hafragrautur.