
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Mánudagur, 01. september 2008 23:07

Í dag varð til opinber síða Tindfjallaskála http://isalpskalar.blogspot.com/
Á þessari síðu er hugmyndin að birta fréttir af endursmíði skálans svo allir þeir sem eru forvitnir um verkefnið geti fylgst með .
Síðan mun verða uppfærð mjög reglulega og myndir fylgja með eftir því sem við á.
Fljótlega munu framkvæmdir hefjast en það hefur tekið sinn tíma að finna góðan stað til að geyma skálann á. Það hefur tekist og mun skálinn verða fluttur þangað í þessari viku.
Því lítur út fyrir að sjálf endurgerðin geti hafist jafnvel í næstu viku
Fylgist með
Vinir Tindfjallaskála