Nýjustu fréttir af ísaðstæðum

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Festivalsnefnd þykir fyrir því að hafa af  ísþyrstum klifrurum helgina og hafði því uppi áform um að skipuleggja léttan snúning í nágrenni bæjarins um helgina. En eftir skoðunarferð í gær þykir ekki fullvíst að klifuraðstæður verði öruggar um helgina.

Skoðun leiddi eftirfarandi í ljós:

  • Kjósarskörð: Ísmyndun í gangi en ekki komin sérstaklega langt á leið. Ís virtist þó sínu meiri vestan við veg, t.d virtist Spori vera klifranlegur úr fjarska.
  • Hvalfjörður: Ísmyndun í gangi og sumsstaðar t.d í Múlafjalli hefur greinilega ekki allur ís horfið vorveðrinu ætti því að geta jafnað sig fyrr en ella. Ekki svo að skilja að mikill ís sé til staðar en þó nægur til að velja sér eina ,,feita” og kíkja nánar á. Nánari skoðun leiddi svo í ljós að binding íss við klett var afar dræm og sá ís sem eftir hafði setið víðast hvar alveg laus frá. Ekkert sást sem þótti verðugt klifurtakmark þennan daginn.
  • Brynjudalur var í frekar sorglegu ástandi en Óríon virðist þó hafa haldið sínum ís að mestu. Dökk lína sást í gegnum hann þverann frá veginum og þyrfti hann því væntanlega nokkra daga í endurhæfingu áður en óhætt væri að heimsækja hann.
  • Esja: Eilífsdaslur er snjóléttur en sárlega íslítill miðað við árstíma. Miðsúlan og Einfarinn er það sem virðist vera í aðstæðum þar.
  • Grafarfoss er að myndast en vantar nokkra daga enn.
  • Búahamrar eru íslitlir en Tvíburagil gæti að sjálfsögðu boðið upp skemmtilegan dag í mix-bolta-klifri.

Nokkrar myndir af aðstæðum er að finna hér.

Einnig bendum við á glænýjar myndir á heimasíða þeirra á Björgum.
Heyrst hefur af einhverjum plönum um norðurferð til að kíkja nánar á þessar aðstæður.

En annars látum við ekki deigann síga og vonumst til að sjá sem allra flesta á ,,einni viku seinna festivalinu” í faðmi fjalla Öræfasveitar.

Kveðja,
Festivalsnefndin