Orðsending frá uppstillingarnefnd

Á næsta aðalfundi ÍSALP eru nokkur sæti í stjórn laus til umsóknar.
Annars vegar 2 sæti til tveggja ára og 2 sæti til eins árs.
Félögum er bent á að allir sem greitt hafa árgjald klúbbsins geta boðið sig
fram. Uppstillingarnefnd bendir ÍSALP félögum á að rifja upp og lesa lög
ÍSALP, en þau má finna á vefsíðu klúbbsins. Uppstillingarnefndin bendir á að
aðeins er hægt að bjóða sig fram á aðalfundi til kjörs ef engin kjörgengnir
félagsmenn hafa boðið sig fram fyrir aðalfund. Hægt er að senda umsóknir á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Með kveðju,
Uppstillingarnefnd



Úr lögum Ísalp:
6. grein Framboð

Framboð til formanns eða meðstjórnenda félagsins þurfa að hafa borist
uppstillingarnefnd minnst 10 dögum fyrir auglýstan aðalfund og vera kynntar
félagsmönnum með birtingu á vef Ísalp sem og með tölvupóstsendingu á netföng
skráðra félagsmanna minnst viku fyrir aðalfund. Berist ekki framboð í öll
laus embætti geta kjörgengir félagsmenn boðið sig fram í lausar stöður á
aðalfundi eftir að kosningar um framkomin framboð hafa farið fram.