Atli og James á Mt Cook

Atli Pálsson og James McEwan félagar í Ísalp og undanfarar í HSSK klifruðu Mt.Cook (3754m), hæsta fjall Nýja Sjálands þann 25. Janúar.
Atli varð þar með fyrstur íslendinga til að klifra Mt.Cook sem er eitt af eftirsóttustu markmiðum fjallamanna um allan heim þar sem fjallið er afar fallegt, bratt og gnæfir hátt yfir suður ölpum Nýja Sjálands. Veðráttan á svæðinu minnir um margt á Ísland, kröftug óveður eru algeng en félagarnir Atli og James fengu frábært veður á tindinum, logn og hvergi ský að sjá. Ferðin á fjallið tók fjóra daga í það heila en toppadagurinn sjálfur tók strákana 14,5 klukkustundir.
Á heimleiðinni klifruðu strákarnir einnig yfir 3000metra háan fjallshrygg sem skiptir suður ölpunum í tvennt og reyndist sá dagur síst minna ævintýri en fjallið sjálft.




Atli og James á toppi Mt CookFara þurfti yfir þetta ísfallÞeir fengu gott veður toppadaginn.Atli og James á toppi Mt Cook