Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 09:59
Snjóflóðafyrirlesturinn hjá Leifi í gær var einstaklega vel heppnaður og líklega aðsóknarmet slegið. Salurinn var algjörlega pakkaður svo flæddi út um dyr og glugga nánast.
Leifur fór yfir helstu atriði sem fjallafólk þarf að hafa í huga þegar það ferðast á svæðum þar sem snjóflóðahætta er fyrir hendi og skýrði á auðskiljanlegan hátt hvernig veður og landslag hefur áhrif í þessu sambandi. Ísalp þakkar Leifi kærlega fyrir frábæran og fræðandi fyrirlestur.
En við höfum ekki sagt skilið við snjóflóðin því þetta var aðeins fyrri hluti af tveimur. Núna næsta miðvikudag (20.01.10) mun Árni Jónsson sem sér um vefsíðuna snjoflod.is, koma og taka fyrir græju- og tæknihliðina. Hann mun segja okkur frá snjóflóðaýlum og öðrum tækjum og tólum sem nauðsynleg eru til að minnka hættuna á mannfalli í snjóflóðum og fara yfir helstu nýjungar og framfarir á þessu sviði.
Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20.Ef að líkum lætur munu svo einhverjir af þeim sem selja snjóflóðaútbúnað á Íslandi koma og kynna sína voru í lok fyrirlestrarins og ekki útilokað að þeir verði með einhver tilboð í gangi.
Viljum minna á að hinir nýju glæsilegu límmiðar Ísalp verða til sölu þetta kvöld. Tilvalin leið til að merkja sig og styrkja klúbbinn: Hjálmalímmiði - 500 kall, öfugur límmiði (t.d. fyrir bílrúður) - 1000 kall. Cash only!