Skrifað af: Björk Hauksdóttir
Föstudagur, 06. nóvember 2009 13:37
Tindfjallaskáli, hinn nýi, hefur nú staðið i Tindfjöllum frá miðjum ágúst á þessu ári.
Eins og flestir vita tókst ágætlega að koma skálanum fyrir. Þeim sem áttu þess kost að vera með í leiðangrinum, verður sú helgi lengi minnisstæð.
Þetta var dæmigerður leiðangur, sem ekkert heldur aftur af. Flest skipulagt í þaula með morgunmat og kvöldmat og allt saman. Jafnvel veðrið var okkur hagstætt, annan daginn.
Nokkur atriði hafa verið lagfærð og því bætt við sem þótti skorta. Olíukyndingin hefur verið stillt og lagfærð og hitar nú ágætlega. Bókahilla og bætt lýsing í eldhúskróknum svo fátt eitt sé nefnt.
Þá hefur verið gengið betur frá innviðum Akademíunnar (kamarinn).
Stofnunin er nú panelklædd og bæsuð.
Í september gerði mikinn storm. Þá feyktust þök og gámar til og frá í Vestmannaeyjum. Á veðurstöð í Tindfjöllum fór mesti vindhraði í u.þ.b. 50 m/sek, sem er nálægt 180 km/klst. Þetta er gríðarlegt rok og fylgdi því bæði rigning og síðan slydda og snjókoma.
Fljótlega eftir að óveðrinu slotaði var farið í Tindfjöll og athugað hvernig skálinn hefði staðið sig. Þá sáust engar skemmdir en austur gaflinn var undir þykkri og þéttri snjókápu. Það kom hinsvegar á daginn að sá gafl hefur orðið fyrir mikilli skæðadrífu vikurs og smásteina. Glerið, tréverkið og bárujárnið er allt marið og hoggið. Eitthvað verður til bragð að taka, því búast má við slíku veðri aftur, og ef jörð er auð, sem er afleitt vegna vikursins sem tekst á flug, verðum við að verja gluggann með einhverju móti.
Seinnipart október varð óhapp hjá flokki manna sem tókst að læsa sig úti. Það varð að ráði flokksins að skrúfa stafngluggann á svefnloftinu úr og smeygja sér þar inn. Að vísu brotnuðu hespur og gluggajárn, en aðrar skemmdir urðu sem betur fer ekki. Þetta varð okkur áminning um, að gera ferðamönnum grein fyrir því að skemmdir sem þeir valda, óvart eða viljandi verður að bæta. Þetta er hin almenna regla hvar sem er, að sá bætir sem brýtur.
Við brugðumst skjótt við og gerðum við skemmdirnar, því ekki var ráð að láta skálann standa illa lokaðan í vetrarbyrjun. Að gera út skála í 800 metra hæð er töluvert fyrirtæki. Fyrst og fremst er mikið viðhald og eftirlit, hvort sem er innandyra eða utan. Skálagjöld standa undir afskriftum og viðhaldi. En það er á ábyrgð þess sem veldur skemmdum að bæta fyrir þær.
Við viljum minna ferðamenn á að ganga vel um skálann. Hverskonar hirðuleysi, misnotkun eða kæruleysi er lítilsvirðing gagnvart þeim fjölda manna, sem fyrstir reistu skálann, og þeim sem síðustu tvö ár endurreistu húsið af mikilli ósérhlífni.
Guð gefi góðan snjó í vetur og langt fram á vor.
Guttormur Þórarinsson.


