Gríðarlega vel heppnaður Búnaðarbazar

 

Yfir 100 manns létu sjá sig á búnaðarbazar Ísalp og FBSR sem haldinn var í húsnæði FBSR síðastliðið fimmtudagskvöld. Búið var að stilla upp borðum þar sem þeir sem hugðust selja varning komu sér fyrir með búnaðinn og verðhugmyndir í kollinum.

Kaupendur gengu svo hringinn í von um að koma auga á eitthvað nógu bitastætt til að bjóða í. Á söluborðum glitti í ýmsan varning eins og t.d. bleika Asolo plastskó, surfbretti, telemarkskíði og skó í massavís, bakpoka á ýmsum stigum úreldingar, handprjónaða þæfða vetrarvettlinga og vörur frá Fjallakofanum, Everest og innflytjanda Ortlieb.


 

Aðrir sýndu söluvarningi minni áhuga, tóku sér frekar stöðu og biðu eftir nýjum aðilum til að spjalla við enda úrvalið á þeim bænum síst verra en á söluborðunum. Almennt gekk salan svona upp og ofan, einhverjir gerðu reyfarakaup meðan aðrir hafa vafalaust látið plata sig til að kaupa sekkjarkött, en svoleiðis er nú bara lífið.

Klúbburinn bar sjálfur nokkuð úr bítunum. Öðlingurinn og rennsimiðurinn Jón Þorgrímsson lét Ísalp í té forláta Chouinard skrúfu. Er hún fyrsti vísir að fjallagræjusafni sem lengi hefur verið talað um að koma á fót. Tökum við glöð á móti fleiri slíkum gripum.

Þeir sem komust að gríðarstórum potti, fullum af fjallakakói Sveinborgar voru ekki sviknir. Allavega þeir sem komust að honum meðan enn var eitthvað í honum en vinsældirnar voru slíkar að veigarnar kláruðust um miðbik bazarsins. Óhemju vinsældir drykksins hafa eflaust eitthvað með hráefnið að gera en sagan segir að í uppskriftinni séu til að mynda hvítt, sólbakað og ferðalagað suðusúkkalaði ala Fjalló og þistilhjörtu.

Ef hráefni fæst verður uppskriftin vafalaust tvöfölduð næst til að fleiri fái að njóta.

Þrátt fyrir velheppnaðan viðburð má búast við eftirstöðvum af bazarnum á umræðusíðum Ísalp næstu daga þar sem óseldir munir verða uppboðnir.

 

 

 

Sumir keyptu allt í stílFreyr formaður tekur á móti Chouinard skrúfunni úr höndum Jóns ÞorgrímssonarVílað og dílaðIMG_1351_smallLítill polli fékk síðasta skammtinn af fjallasúkkulaðinu

 

Takk fyrir frábært fimmtudagskvöld. Sjáumst svo á Shivling myndasýningu!