Leiðangursstyrkur 66°Norður

Þrír félagar í ÍSALP, þeir Skarphéðinn Halldórsson, Sveinn Friðrik Sveinsson og Björgvin Hilmarsson, hlutu á dögunum leiðangursstyrk 66°Norður. Styrkinn hyggjast þeir nota í klifurferð til Lofoten í norður Noregi næsta sumar.

Lofoten er eyjaklasi sem gengur út í Norður-Atlantshafið við 68. gráðu norðlægrar breiddar. Landslagið einkennist af tignarlegum klettatindum sem ganga í sjó fram. Þó að hæsti tindur Lofoten sé ekki nema tæplega 1200 metra hár bjóða eyjarnar upp á aragrúa klifurleiða, allt frá eins spanna sportleiðum upp í tæplega þúsund metra þverhnípta veggi. Það ætti því að vera af nógu að taka fyrir strákana.

Leiðangursstyrkur 66° Norður er veittur tvisvar á ári og er styrkurinn að andvirði 500 000 kr í fatnaði og peningum.
Í vor hlaut Jón Gunnar Benjamínsson styrkinn til að kanna aðgengi fatlaðra á hálendinu og gekk það vel. 

Valnefnd skipuð fulltrúum frá Íslenska Alpaklúbbnum, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, Ferðafélagi Íslands, Ferðafélaginu Útivist, Bandalagi íslenskra skáta, Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum ásamt fulltrúa frá 66°Norður fór yfir allar umsóknir og valdi í þetta skipti félaga okkar.

Spennandi verður að fylgjast með ferðalagi strákanna og gerum við ráð fyrir því að ferðin verði vel skrásett á filmu og prent.

Félagsmenn eru svo hvattir til að fylgjast með þegar opnað verður fyrir umsóknir á næsta ári og sækja að sjálfsögðu um. 
Lofoten