Leiga Tindfjallaskála

Veturinn virðist vera að koma yfir landið með tilheyrandi tilhlökkun fjallamanna. Það er gaman að segja frá því að nú er Tindfjallaskáli tilbúinn til útleigu eftir ársfjarveru frá fjöllunum.
Búið er að setja inn upplýsingar um aðstöðu í skálanum ásamt við hverja á að hafa samband til að panta skálann. Hér má síðan sjá hvenær skálinn er laus.


Það er orðið ansi vetrarlegt í Tindfjöllum eins og sjá má á þessum myndum sem voru teknar í gönguferð sem nokkrir úr HSSR fóru síðasta sunnudag. Þannig að nú er um að gera að panta skálann og fara að brýna axir og vaxa og skerpa kanta á skíðum.

Vetrarlegt, mynd: Árni TrFíni skálinn, mynd: Árni TrBúraskarð, mynd: Árni TrAð komast uppá Ými, mynd: Árni Tr