Reisugilli Tindfjallaskála

Þriðjudaginn 11. ágúst hittust Ísalparar og gamlir Fjallamenn á planinu á Kirkjusandi til að bera Tindfjallaskála augum áður en hann heldur til síns heima helgina 14-16. ágúst. Ljúffengar pulsur og drykkir runnu ljúflega ofaní mannskapinn í sumarblíðunni.

Það var virkilega gaman að sjá hve margir eldri félagar sáu sér fært að mæta og gaman að heyra gamlar ferðasögur úr Tindfjöllum sem voru m.a. frá hestaferðum þar sem menn tróðu leiðina fyrir dýrunum og brúðkaupsferð eldri félaga frá árinu 1964.

Það voru rifjaðar voru upp margar sögur.Það voru samankomnir fjölmargir fjallakarlar og konur á Kirkjusandi.Það var gaman að skoða skálann að innan.Það var fjöldi fólks sem lagði leið sína á Kirkjusandinn.Guttormi þakkað innilega fyrir sín störf í þágu fjallamennsku á Íslandi.Þór Ægisson, Pétur Þorleifsson og Snævarr Guðmundsson.Óli trukkur, Elín og Kobbi klaki.Anna, Bjössi Vill, Einar, Jón Geirs og Guðjón Magnússon (fyrrverandi formaður Ísalp)Hlíf og vinkona (man því miður ekki nafn)Feðgarnir Maggi Hall og Hörður Magg.Hallgrímur Magnússon og Magnús HallgrímssonElín, Snædís og HerdísJói og Hlynur sem munu flytja skálann aftur uppí Tindfjöll.Gjaldkerinn og ritarinn, Björk og SkabbiEins og Guttormur segir, svona verkefni klárast aldrei. Hér er hann að reyna að koma gaslukt í gang.GóliMaggý og dóttirin sem fær nafn eftir viku.Það á enn eftir að koma hitaranum í gang, Valli og fleiri voru í því verkefni allt kvöldið.