Skrifað af: God Godson
Sunnudagur, 07. júní 2009 22:39

Eftir langa og stranga törn hjá vefdrengjunum okkar Guðlaugi Inga og Ólafi Hrafni er nýr vefur Íslenska alpaklúbbsins kominn í loftið. Við undirbúning og útfærslu þessa nýja vefs var stuðst við óskir félagsmanna eins og þær komu fram í könnun sem gerð var þeirra á meðal á því herrans ári 2006.
Gamli vefurinn hafði þjónað klúbbnum í rúman áratug við góðann orðstýr. Helgi Borg hafði veg og vanda af þeim vef allan þann tíma og kann stjórn Ísalp honum bestu þakkir fyrir. Að annast vef fyrir samtök er töluverð vinna og ekki sjálfgefið að menn taki það að sér í heilan áratug endurgjaldslaust. Helgi á því heiður skilinn fyrir sitt framlag til Íslenska alpaklúbbsins.
Það er von þeirra sem standa af útgáfu þessa nýja vefs að meðlimir taki honum fegins hendi og nýti sér alla þá möguleika sem hann hefur upp á að bjóða.
Eins og gefið var út á spjallborði gamla isalp.is er þessi nýi vefur í "BETA" ham fyrst um sinn. Það felur í sér að ekki hefur öll virkni verið útfærð og ekki er allt það efni komið inn sem verður aðgengilegt á vefnum þegar fram líða stundir. Stjórnin biður ísalpara að sína þolinmæði ef hnökrar verða notkun vefsins. Það skal vakin athygli á því að vefurinn virkar best í Firefox vafranum.
Meðal nýjunga á vefnum eru/verða:
- Ársrit Ísalp frá upphafi aðgengileg á pdf formi fyrri meðlimi
- Leiðarvísar verða gefnir út fyrir meðlimi
- Umræðusvæði hefur verið gætt nýrri virkni og er nú meðal annars hægt að
- Birta myndbönd af YouTube
- Birta ljósmyndir
- Birta virka hlekki
Notendur geta skráð sig inn á vefinn með sömu notendaupplýsingum og á gamla vefnum. Stjórnin þiggur allar athgasemdir og hrós um vefinn. Vinsamlegast beinið öllu slíku
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Lifið heil!
Stjórnin