Ársrit
Skrifað af: Björk Hauksdóttir   
Mánudagur, 30. nóvember 2009 22:19
Í þessum skrifuðu orðum er verið að prenta út ársrit Ísalp fyrir árið 2008.
Ársritin verða afhent til félaga sem geta ekki beðið eftir því að fá það í pósti, á fimmtudaginn. Ísalparar geta því komið niðrí félagsaðstöðu Ísalp í Skútuvoginum 3. des kl 19:30 og fengið glóðvolgt ársrit ásamt félagsskírteinum.

Klukkan 20:00 mun hefjast sýning á skíðamyndinni Steep og má sjá nánar um hana í dagskránni.

Gömul ársrit Ísalp er nú aðgengileg á rafrænu formi.
Félagi í Ísalp, Jón Hrói Finnsson, hefur unnið þetta langþráða verkefni fyrir Ísalpara undanfarnar vikur, það er að skanna inn öll ársrit Ísalp og eru þau nú aðgengileg fyrir þá sem hafa greitt árgjaldið. Stjórn Ísalp þakkar Jóni Hróa kærlega fyrir þetta þarfa verk. Okkar bestu þakkir.





 
Fyrstu skref Tindfjallaskála
Skrifað af: Björk Hauksdóttir   
Föstudagur, 06. nóvember 2009 13:37
Tindfjallaskáli, hinn nýi, hefur nú staðið i Tindfjöllum frá miðjum ágúst á þessu ári.

Eins og flestir vita tókst ágætlega að koma skálanum fyrir.  Þeim sem áttu þess kost að vera með í leiðangrinum,  verður sú helgi lengi minnisstæð.

Nánar...
 
Leiðangursstyrkur 66°Norður Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir   
Mánudagur, 02. nóvember 2009 00:00
Þrír félagar í ÍSALP, þeir Skarphéðinn Halldórsson, Sveinn Friðrik Sveinsson og Björgvin Hilmarsson, hlutu á dögunum leiðangursstyrk 66°Norður. Styrkinn hyggjast þeir nota í klifurferð til Lofoten í norður Noregi næsta sumar.

Lofoten er eyjaklasi sem gengur út í Norður-Atlantshafið við 68. gráðu norðlægrar breiddar. Landslagið einkennist af tignarlegum klettatindum sem ganga í sjó fram. Þó að hæsti tindur Lofoten sé ekki nema tæplega 1200 metra hár bjóða eyjarnar upp á aragrúa klifurleiða, allt frá eins spanna sportleiðum upp í tæplega þúsund metra þverhnípta veggi. Það ætti því að vera af nógu að taka fyrir strákana.
Nánar...
 
Gríðarlega vel heppnaður Búnaðarbazar
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir   
Mánudagur, 19. október 2009 21:08

 

Yfir 100 manns létu sjá sig á búnaðarbazar Ísalp og FBSR sem haldinn var í húsnæði FBSR síðastliðið fimmtudagskvöld. Búið var að stilla upp borðum þar sem þeir sem hugðust selja varning komu sér fyrir með búnaðinn og verðhugmyndir í kollinum.

Kaupendur gengu svo hringinn í von um að koma auga á eitthvað nógu bitastætt til að bjóða í. Á söluborðum glitti í ýmsan varning eins og t.d. bleika Asolo plastskó, surfbretti, telemarkskíði og skó í massavís, bakpoka á ýmsum stigum úreldingar, handprjónaða þæfða vetrarvettlinga og vörur frá Fjallakofanum, Everest og innflytjanda Ortlieb.

Nánar...
 
Myndasýning og fatasöfnun
Skrifað af: Björk Hauksdóttir   
Sunnudagur, 18. október 2009 21:30
Minnum á Shivling myndasýningu frá leiðangri fimmenninganna, Arnars Þórs Emilssonar, Berglindar Aðalsteinsdóttur, Eiríks Geirs Ragnars, Gunnars Sverris Ragnars og Kára Erlingssonar, til Indlands til að freista þess að klífa fjallið Shivling (6543m) haustið 2008.

Sýningin fer fram í húsi Hjálparsveitar skáta í Garðabæ fimmtudagskvöldið 22.október kl 20:00.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL