
Skrifað af: Rúnar Óli Karlsson Föstudagur, 11. apríl 2003 17:12

Skíðaáhugamenn fjölmenntu á snjósæringarnar á Silfurtorgi þar sem Jóhann Torfason forstöðumaður skíðasvæðisins aðstoðaði við að blanda saman torfi, snjó, þorskhausum og fleiri máttugum efnum í nornapotti til að freista þess að sveigja veðrið að vilja skíðamanna. Að lokum var Jóhann Torfason skírður upp á nýtt að sið galdramanna og heitir nú Jóhann Snær. Hyggst hann opna skíðasvæðið klukkan tíu í fyrramálið og lofar nýrri og djúpri mjöll frá fjalli til fjöru.