Skrifað af: Guðmundur Freyr Jónsson
Sunnudagur, 05. febrúar 2012 22:23
Aðalfundur Ísalp 1.2.2012Aðalfundur var haldinn miðvikudaginn 1. febrúar þar sem nokkrir mættu og fóru yfir mál klúbbsins, svosem að skoða ársreikninga, kjósa í stjórn ofl.
Fundarstjóri: Sveinn Friðrik Sveinsson
Fundarritari: Guðmundur Freyr Jónsson
Dagskrárliðir voru:Skýrsla stjórnarAtli Pálsson formaður las skýrslu stjórnar fyrir fundarmenn.
ÁrsreikningurÁrsreikningar lagðir fram og kynntir. Halldór Albertsson gjaldkeri fór yfir ársreikningana.
Í ljós kom á fundinum að það gæti verið að ársreikningurinn sé hugsanlega ekki réttur varðandi Banff 2011 miðað við tekjurnar og því voru reikningarnir samþykktir með þeim fyrirvara að skoðun mun fara fram á því ásamt hugsanlegri leiðréttingu.
Eftir fundinn fannst mismunurinn í kortakerfinu frá Banff og hefur nú skilað sér, en sú upphæð var uppá 220.000 og því kemur út leiðréttur ársreikningur eins og fyrirvarin á samþykktinni sagði til um. Þetta þýðir því að árið kom út á uþb núlli.
Tryggingar, bæði ársritin og bókasafn eru með sér tryggingar og því væri hægt að skoða að sameina það þar sem allt er geymt á sama stað.
Engin árgjöld bókuð á árgjald 2011. Ástæða þess er að við skiptum yfir í að rukka inn árgjöld fyrir gjöld nýs árs en ekki fyrir liðið ár. Þetta var núllstilling á seinkun útgefinna reikninga þar sem seinkanir voru farnar að valda því að reikningar voru sendir út í lok árs fyrir það sama ár. Þetta þýðir að tekjur uppá uþb. 800.000 séu ekki bókaðar á árið 2011 vegna þess.
Minni tekjur af skálagjöldum, gæti skýrst af því að margar björgunarsveitir fyrirframgreiddu gistinætur þegar verið var að gera upp skálann. Sjá einnig önnur mál þar sem markaðssetning skála er tekið fyrir.
Reikningar ísalp (innistæður). Til stendur að festa fé á reikninga til að fá smá ávöxtun á peninga klúbbsins upp að einhverju marki. Til þess þarf að búa til fjárhagsáætlun um hvað við þurfum að hafa af lausafé.
Þurfum að koma Tindfjallaskála í eignaskrá Ísalp, til að klára það gæti þurft að skrá húsið betur sem fasteign oþh.
Lagabreytingar:Engar formlegar lagabreytingar bárust, en Páll Sveinsson lagði til að setja í lög á næsta aðalfundi hvenær senda á út reikninga árgjalds og fyrir hvaða tímabil.
Kjör í stjórn:
Uppstillingarnefnd fékk engin framboð, allir á leið úr stjórn nema Atli formaður og Gummi ritari.
Atli hefur lokið einu ári af tveimur í hans framboði en Gummi er að klára tveggja ára framboð og býður sig áfram fram til árs í viðbót.
Samkvæmt lögum þarf að fá inn tvo til 2 ára og þrjá til 1 árs.
Atli Pálsson formaður heldur áfram í seinna ár 2 ára tímabili
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Guðmundur Freyr Jónsson býður sig áfram til eins árs í viðbót
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Daníel Guðmundsson
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Styrmir Steingrímsson
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Árni Stefán Haldorsen S. 866-1503
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Helgi Egilsson
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og
Rúna Thorarensen komu inn á lokasprettinum
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Árni Stefán getur hinsvegar hugsanlega ekki klárað tímabilið þar sem hann flytur hugsanlega erlendis í lok árs en það kemur í ljós. Þá finnum við einhvern til að leysa hann af.
Til tveggja ára voru þeir Daníel og Styrmir. Hin þrjú til eins árs.
Uppstillingarnefnd:Uppstillingarnefnd hefur lokið störfum og ný uppstillingarnefnd mun samanstanda af Halldóri Albertssyni, James McEwan og Guðmundi F. Jónssyni.
Kjör skoðanamanna ársreikinga:Páll Sveinsson og Björk Hauksdóttir bjóða sig áfram sem skoðunarmenn ársreikinga klúbbsins.
Árgjald næsta árs:Árgjaldið í dag er kr. 4000-
En á næsta ári var samþykkt að hafa gjaldið kr. 4.100- á næsta ári (2013).
Önnur mál:Klifurhúsið er orðið mjög þröngt þar sem margir eru farnir að æfa klifur. Klifurfélagið er að skoða með stærra húsnæði, gætum skoða það með þeim.
Mættum kynna Tindfjallaskála betur, lítið nýttur og mætti því nota hann meira. Þurfum að markaðssetja hann, sérstaklega innan félagsins.
Margir að stunda sport- og plastklifur án þess að fara útí neina fjallamennsku sem tengist ísalp. Sporthliðin á þessu er að fjarlægjast klúbbinn og mætti skoða að nálgast það betur.
Segðu þína skoðun
Þú verður að vera
skráður inn eða þarft að
skrá þig til að taka þátt í umræðunni.