Skrifað af: Arnar Jónsson
Mánudagur, 30. janúar 2012 12:00

Ljósmynda og videokeppni Ísalp var haldin á föstudaginn 27. janúar og var góð stemming á kvöldinu. Myndirnar gengu í slideshowi og voru öll myndböndin sýnd. Mikill metnaður var í keppendum að þessu sinni enda til mikils að vinna bæði í ljósmyndakeppninni og í videokeppninni.
Íslenski Alpaklúbburinn vill þakka keppendum, samstarfs- og styrktaraðilum kærlega fyrir sín framlög.
Ljósmyndakeppni úrslit
Keppt var í fjórum flokkum í ljósmyndahluta keppnininar og voru þeir flokkar ísklifur, klettaklifur, skíði og mannlíf á fjöllum. Fyrir bestu mynd í keppninni (overall) var í verðlaun Canon D10 myndavél ásamt aukahlutapakka sem er bæði vatns og höggheld og hentar því vel í sportið. Það var Nýherji, umboðsaðili Canon á Íslandi sem veitti verðlaunin.
Fyrir vinningsmyndir í hverjum flokki veitti Fjallakofinn 10.000kr inneign og til að menn gengu ekki út tómhentir voru afhendir Scarpa stuttermabolir í bónus.
Í dómnefnd sátu Atli Pálsson, Páll Sveinsson og Sigurgeir Sigurjónsson
Besta myndin (overall):

Björgvin Hilmarsson klifrar í Austurárdal,
mynd eftir Ívar F. Finnbogason
Sigurvegarar í sínum flokkum
Hægt er svo að sjá þær myndir sem sendar voru inn hér neðar í greininni.
Myndbandakeppni úrslit
Myndbandakeppnin var haldin í samstarfi við spenna.is og bárust dómnefnd 9 myndbönd og voru þau hvort öðru betri og var því valið erfitt. Mikill metnaður virðist vera í myndbandagerð Ísalpfélaga og verður gaman að sjá þróunina á næstu árum þar sem þessi viðburður er kominn til að vera.
Í dómnefnd sátu Andri Ómarsson, Atli Pálsson og Ingvar Á. Þórisson
Í verðlaun fyrir besta myndbandið veitir spenna.is sigurvegara Countour HD hjálmamyndavél sem kemur að góðum notum við gerð framtíðarmyndbanda.
Sigur myndband:
Klettafjöllin í Kanada, eftir Berglindi Aðalsteinsdóttur.
Sigurmyndbandið verður svo sýnt fullri lengd á Banff kvikmyndahátðinni nú í ár.
Hægt er svo að sjá þau myndbönd sem tóku þátt á spenna.is.
Innsendar ljósmyndir í keppnina
Góð þáttaka var í keppninni og margar mjög góðar myndir, synd væri að sýna þær ekki. Hér fyrir neðan má sjá þær myndir sem tóku þátt í hverjum flokk fyrir sig.
Ísklifur
Klettaklifur
Skíði
Mannlíf á fjöllum
- -
Stjórnin vil svo þakka sérstaklega góða þáttöku og auðvitað styrktaraðilum keppninar sem gáfu verðlaunin. Ef þið hafið eitthverjar athugasemdir eða ábendingar í sambandi við greinina þá sendið póst á
stjon@sjorn.is.