Dagskrá vetrarins

Kæru félagar

Um leið og við í stjórn Isalp þökkum fyrir starfið á árinu og óskum ykkur alls hins besta á komandi ári, birtum við dagskrá klúbbsins fram á vor. Viðburðir og starf klúbbsins hefur oft verið öflugra en undanfarna mánuði og því hefur stjórnin sett sér það markmið að bjóða uppá áhugaverða og vel skipulagða viðburði sem við vonum að Isalparar fjölmenni á. Mögulegt er að viðburðir bætist við sem verða þá auglýstir síðar.


Við hlökkum til að sjá ykkur öll í starfi klúbbsins á nýju ári.



*27 janúar Ljósmynda og myndbandakeppni Isalp*

Það hefur verið siður undanfarin ár að halda ljósmyndakeppni Isalp samhliða Banff. Fyrir síðasta Banff var ákveðið að auka veg þessarar keppni og einnig gefa þeim sem eru að búa til myndbönd færi á að taka þátt. Keppnin í ár verður í samstarfi við Spenna.is og Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndara. Skilafrestur fyrir keppnina er 22. janúar og leikreglur verða birtar 3 janúar á
isalp.is


*1 febrúar Aðalfundur Isalp*

Aðalfundur Isalp verður haldinn 1 febrúar og verður formlegt fundarboð sent þegar nær dregur.


*11-12 febrúar Ísklifur festival*

Ísklifurfestivalið verður haldið með hefðbundnu sniði, ísklifur, kjötsúpa og frábær félagsskapur. Í ár verður festivalið haldið á Bíldudal eða Reyðarfirði en kosning er í gangi á isalp.is þar sem félagar geta valið hvorn staðinn þeir vilja frekar. Sá staður sem lendir í öðru sæti veður hafður til vara.


*16-18 mars Telemark festival*

Telemark festivalið verður haldið helgina 16-18 mars norðan heiða en nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Þó má reikna með frábæru færi, búningakeppni, lokahófi og öðru tilheyrandi.

*11 apríl Myndasýning-skíði*


Í byrjun vor skíða tímabilsins verður boðið uppá myndasýningu og sögukvöld í húsakynnum klúbbsins. Hallgrímur Magnússon ætlar að koma og sýna myndir meðal annars frá „kite“ skíðaferð en einnig verður leitað til annarra skíðamanna í klúbbnum sem hafa farið flottar skíðaferðir undanfarið.


*16-17 maí (9-10 maí) Fjallamyndahátíð Banff*

A síðasta ári var Banff haldið í Bíó paradís og komust færri að en vildu. Banff verður að öllum líkindum aftur í Bíó paradís og þá í stóra salnum svo það verða næg sæti fyrir félaga Isalp.


Bestu kveðjur
Stjórn Ísalp



Segðu þína skoðun
Þú verður að vera skráður inn eða þarft að skrá þig til að taka þátt í umræðunni.