Borði

Ísklifurfestival 2012

Ísklifurfestivalið 2012 verður haldið 11-12 febrúar á komandi ári. Stjórnin hefur ákveðið tvo staði, Bíldudal eða Reyðarfjörð, en ætlar að láta það í hendur meðlima að kjósa um endanlegan áfangastað.

Svæðið í kringum Bíldudal þekkja Ísalparar eftir stórskemmtilegt festival sem við héldum þar 2009. Þá voru í kringum 30 leiðir frumfarnar á svæðinu af öllum erfiðleikagráðum sem var einungis örlítið brot af því sem í boði er á svæðinu einhver skaut á að eflaust væri um 80% leiðanna enn ófarnar. Eitt er víst að þeir sem voru viðstaddir seinustu heimsókn á Bíldudal eru enn að láta sig dreyma um allar þær girnilegu leiðir sem bíða þess að vera klifraðar.

Á austfjörðum er fullt af óspjölluðum ís og leynist hann á ýmsum svæðum víðsvegar um firðina. Einhverjir Ísalparar hafa farið til Reyðarfjarðar og Seyðisfjarðar á liðnum árum og á nógu er að taka á þessum stöðum. Einnig var haldið festival í Breiðdalnum fyrir ekki svo löngu þar sem góð stemming var.

Því hefur verið komið upp könnun hér á vefnum þar sem innskáðir félagsmenn geta kosið. Sá áfangastaður sem fær flest atkvæði verður vettvangur ísklifurfestivalsins en hinn verður hafður til vara. Kosning stendur yfir dagana 28 desember til  4 janúar og hvetjum við alla til að taka þátt.

P.S. Ef einhverjir skyldu eiga í vandræðum með að kjósa þá geta þeir sent tölvupóst á stjórnina með sínu atkvæði.
You do not have permissions to access this page.
Segðu þína skoðun
Þú verður að vera skráður inn eða þarft að skrá þig til að taka þátt í umræðunni.