Skrifað af: Ágúst Kristján Steinarrsson
Miðvikudagur, 07. desember 2011 23:16
Preppkvöld Ísalp lukkaðist vel þar sem fjallað um meðferð búnaðar fyrir skíðamenn, snjóbrettamenn og ísklifrara.
Gauti í Útilíf fór yfir alla þá visku sem hann hefur viðað að sér á löngum ferli sem skíðamaður og viðgerðarmaður skíða. Farið var yfir allt frá viðgerðum, til brýningar og loks vöxunar auk þess sem fjallað var um skíðaúrvalið í dag, sem er orðið ansi víðtækt. Þá voru ófáar spurningar bornar upp og virðist sem Gauti sé ótæmandi uppspretta um þetta viðfangsefni. Loks gafst gestum tækifæri á að spreyta sig á þjölinni, straubrettinu og sköfunni.
Siggi Tommi tók svo við og skar sig ekkert úr hvað viskubrunninn varðar og kom ýmislegt fróðlegt fram sem mun nýtast fyrir ísklifrarana. Fjallaði hann um brýningar ísaxa, brodda og ísskrúfa og ljóst er að ýmsu er að huga sem verðmætt er fyrir leikmennina að vita, sem og lengra komna. Að lokinni umfjöllun gafst gestum færi á að fá ráðgjöf um meðferð síns búnaðar og voru ráðleggingar um ísskrúfunar sérstaklega vinsælar.
Kvöldið heppnaðist vel og eru þeir sem mættu eflaust komnir með smá forskot á hina fyrir komandi vetrarfjör. Þá var sérstaklega jákvætt að sjá hversu mörg ný andlit voru á kvöldinu, sem vonandi láta sjá sig aftur.
Segðu þína skoðun
Þú verður að vera
skráður inn eða þarft að
skrá þig til að taka þátt í umræðunni.